
Jarðskjálftamælabankinn Loki er tækjabanki sem á og leigir út færanlega jarðskjálftamæla, til vísindarannsókna, til eigenda sinna og samstarfsaðila þeirra.. Hann er í eigu Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR).
Yfirumsjónarmaður mælabankans er Kristín S. Vogfjörð (vogfjord@vedur.is) og starfsmaður bankans er Ríkey Júlíusdóttir (rikey@vedur.is).
RANNÍS er aðalstyrktaraðili jarðskjálftamælabankans en einnig styrkja Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun og Viðlagatrygging Íslands bankann.